Mannaskipti í stjórn Vestnorræna sjóðsins

29. fundur
Þriðjudaginn 19. nóvember 1991, kl. 13:41:00 (1020)

     Páll Pétursson :
     Frú forseti. Ég get ekki skilið það öðruvísi en svo að mennirnir hafi verið reknir frá störfum því að þeir voru fyrirvaralaust leystir frá störfum sem þeir höfðu gegnt að mínu mati óaðfinnanlega. Ég sé ekki að hér sé um neitt annað að ræða en beina skoðanakúgun og misbeitingu valds af grófasta tagi. Ég lýsi furðu minni á þessum viðbrögðum forsrh. og tel þau algerlega fordæmanleg.