Yfirtaka á skuldum orkufyrirtækja

29. fundur
Þriðjudaginn 19. nóvember 1991, kl. 13:44:00 (1023)

     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) :
     Virðulegi forseti. Orðið ,,yfirtaka skulda`` hefur alveg ótvíræða merkingu. Ríkið hefur létt þessum skuldum af Orkubúi Vestfjarða. Það þýðir að skuldabyrði orkubúsins hefur lést sem því svarar.