Aðstöðugjald

31. fundur
Fimmtudaginn 21. nóvember 1991, kl. 12:37:00 (1170)

     Fyrirspyrjandi (Árni R. Árnason) :
     Frú forseti. Ég þakka hæstv. félmrh. svör hans við fsp. og þarf ekki að ítreka hver

þau voru, efnislega jákvæð. Ég skil fullkomlega að vandaðan undirbúning þarf í þessu máli og að taka þarf tillit til fjárhagslegrar stöðu sveitarfélaganna í landinu. En hvað varðar þær athugasemdir sem hér voru gerðar vænti ég þess að þær megi skilja sem svo að þeir þm. hv. báðir séu fylgjendur þessa máls þegar þar að kemur. En um athugasemd hv. 8. þm. Reykn. verð ég þó að segja eins og er að mér virðist hún algerlega tilefnislaus.