Hæstv. forseti. Ég vil á ný þakka forseta fyrir að heimila mér að taka til máls undir liðnum fyrirspurnir en ekki yfirlýsing varðandi þær umræður sem fóru fram á mánudaginn var um þyrlukaup og eftirmála þeirra umræðna. Áður en ég kem að því vil ég að það komi skýrt fram að frá 1987 hef ég barist fyrir þessu máli. 12. nóv. 1987 flutti ég fyrst þáltill. sem gerði ráð fyrir því að keypt yrði björgunarþyrla og hélt síðan málinu gangandi allar götur síðan á hverju ári.
Fyrir tveim vikum, sennilega nær þrem, kynnti ég í þingflokki sjálfstæðismanna að ég mundi leggja fram frv. til laga um að keypt yrði björgunarþyrla. Þetta er alveg nauðsynlegt að komi fram í ljósi þeirra ummæla sem hæstv. forsrh. viðhafði í fjölmiðlum í gær. Sú umræða sem fór fram á mánudaginn snerist um þyrlukaup og það er engin leið að álasa mér sem hef barist fyrir þessu máli alla tíð fyrir að taka þátt í þeirri umræðu. Ég kom ekki inn í þá umræðu fyrr en sem sjötti, sjöundi eða jafnvel áttundi ræðumaður. En, hæstv. forseti, af því að ég hef skamman tíma ætla ég ekki að spyrja hæstv. forsrh. um hinn ærumeiðandi þátt í viðtali hans. Ég ætla hins vegar að lesa kafla úr viðtalinu og biðja hæstv. forsrh., ef hann svo kýs, að skýra fyrir þingheimi og alþjóð ummæli sín og færa einnig rök
fyrir þeim. Síðan ætla ég að fá að víkja aðeins að þeirri nýju stefnu sem boðuð var í þyrlukaupamálum.
Mér skilst að það hafi verið viðtal við hæstv. forsrh. í fréttum á Bylgjunni í gær sem ég heyrði því miður ekki. Það kallaði á mjög snörp viðbrögð fólks í landinu sem hringdi margt í Þjóðarsálina og gerði athugasemdir við yfirlýsingar ráðherrans sem varð til þess að Rás 2 hringdi og hafði við hann viðtal. Var hann m.a. spurður um kaupin og um björgunarþyrlu almennt. Ég ætla að fá að grípa hér inn í svar ráðherra þar sem það er hvort eð er kaflaskipt. Þar segir hann, með leyfi forseta:
,,Ég hins vegar sagði við fréttamann Bylgjunnar að mér fyndist slæmt þegar mál af þessu tagi væru rædd í skugga slíkra atburða sem orðið hefðu. Slíkra hörmungaratburða sem orðið hefðu. Mér fyndist slæmt þegar menn féllu í þá freistni að slá sig til riddara í skugga slíkra atburða.`` --- Hæstv. forseti. Ég harma það að tíminn sé búinn. Ég er alls ekki búinn og bið um að fá örlítið lengri tíma.
Seinna í viðtalinu segir hæstv. forsrh.: ,,Menn eiga ekki að gefa til kynna þegar slík sorg hefur dunið yfir að eitthvað annað hefði getað gerst ef þyrla hefði þegar verið komin og menn eiga að forðast að falla í þá freistni að hefja sjálfa sig upp eða að reyna að nota tímann til að slá sjálfa sig til riddara þegar slíkir atburðir gerast.`` Þá spyr fréttamaður: ,,Þá ertu t.d. að tala um flokksbróður þinn, Inga Björn Albertsson?`` Hæstv. forsrh. svarar: ,,Já, mér fannst margt af því sem hann sagði vera afspyrnusmekklaust og ekki viðeigandi þegar margir eiga um svo sárt að binda að vera að hefja sig til riddara á slíku augnabliki.``
Hæstv. forseti. Ég skal geyma þyrlukaflann í þessu máli þar sem tíminn er á þrotum og ég get ekki fjallað meira um þetta. Það kom fram fyrr í dag í þingskapaumræðum hvað ég er að tala um og ég er búinn að segja að ég óska eftir að þessi ummæli séu skýrð og fyrir þeim færð rök. Það er ekki ég einn sem sit hér undir. Fjölmargir aðrir þingmenn töluðu í umræðunni.