Guðrún Helgadóttir
:
Hæstv. forseti. Ég kann ekki við að sitja lengur þegjandi undir þeim árásum sem hv. 5. þm. Reykv. hefur orðið fyrir vegna þess að hann átti ekki upptökin að þeirri umræðu sem fór fram á mánudaginn. Það var ég sem bað um að þetta mál yrði tekið upp og ég gerði það í hjartans alvöru. Vegna þess að við höfðum nokkrir hv. þm. verið mjög samstiga um að reyna að koma þessu máli í gegn. Nægir að minna á hv. allshn. sameinaðs þings sem sat á síðasta þingi. Ég vil því gjarnan vera manneskja til að heyra það einnig frá hæstv. forsrh. hvort ég hafi þar með verið þinginu til vansa með því að biðja um þessa umræðu. Ég tel að ég verði að bera þá sök líka svo og aðrir þeir hv. þm. sem barist hafa fyrir þessu mikilvæga máli. Ég óska eftir að hæstv. forsrh. segi mér það hvort ég hafi þar með orðið Alþingi til vansa eins og hv. þm. Ingi Björn Albertsson.