Fyrirspyrjandi (Hjörleifur Guttormsson)
:
Virðulegur forseti. Á þskj. 151 ber ég fram fsp. til hæstv. utanrrh. um þinglega meðferð EES-samnings og fylgifrumvarpa. Fyrirspurnin er svohljóðandi:
,,Í hvaða formi og innan hvaða tímamarka hyggst ríkisstjórnin leita staðfestingar Alþingis á EES-samningnum og leggja fram og fá samþykkt frumvörp til breytinga á íslenskri löggjöf vegna reglugerða, tilskipana og annarra reglna sem leiðir af samningnum?``
Þetta er fyrirspurnin. Tilefni hennar þarf vart að rökstyðja í löngu máli, svo mikið hefur verið rætt um þessa samningsgerð, síðast í utandagskrárumræðu í þinginu í gær og í lengra formi þann 5. nóv. sl. Við þá umræðu innti ég hæstv. utanrrh. eftir þessu máli sem nú liggur fyrir í fyrirspurnarformi, þ.e. hvernig málið yrði lagt fyrir Alþingi ef þetta verður þá einhvern tíma samningur. Og þá, þann 5. nóv., hafði hæstv. utanrrh. ekki svör á reiðum höndum, en greindi hins vegar frá því svona í almennum orðum hvernig hann hygðist taka á málinu gagnvart þinginu.
Ég held að það sé mjög brýnt fyrir Alþingi að fá vitneskju um það hvernig hæstv. ráðherra ætlar að haga þessu máli gagnvart þinginu og ég geri ráð fyrir því að það sé einnig eftirspurn eftir svörum frá hæstv. ráðherra í Stjórnarráði Íslands, þ.e. hjá þeim ráðuneytum sem ætlað er að beiti sér fyrir breytingum á íslenskri löggjöf sem afleiðingum af þessum ráðgerða samningi um Evrópskt efnahagssvæði.
Ég vísa til þess að starfstími Alþingis samkvæmt starfsáætlun er fram undir miðjan maí að vori. Ég veit að á hinum Norðurlöndunum, t.d. í Noregi og Svíþjóð, eru áform stjórnvalda að fá staðfestingu þjóðþinganna á EES-samningi fyrir sumarhlé þinganna og einnig að fá breytingar á löggjöf í öllum aðalatriðum fyrir sumarhlé á þjóðþingunum á hinum Norðurlöndunum. Fari svo, virðulegur forseti, að þessi samningur verði undirritaður af ráðherrum sem þurfa að setja nafnið sitt þar undir þegar kemur fram yfir áramótin, þá bíður þjóðþings Íslendinga sem og annarra þjóðþinga og Evrópuþingsins mikið verk að fjalla um samninginn.