Ummæli forsætisráðherra í fjölmiðlum um starfshætti á Alþingi

37. fundur
Fimmtudaginn 28. nóvember 1991, kl. 13:08:00 (1382)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Miðað við viðveruskjá forseta mun hæstv. forsrh. ekki vera kominn í húsið frekar en ýmsir aðrir hv. þm. á þessari stundu, en það má búast við því að menn sé óðum að drífa að. Við vitum að nefndarfundir hafa verið í morgun og standa jafnvel einhverjir enn yfir og forseti efast ekki um, þar sem ekki hafa verið boðaðar fjarvistir þeirra sem fjarstaddir eru á þessari stundu, að þeir hljóti að koma innan tíðar. En forseti mun að sjálfsögðu kanna það hvort ekki sé von á hæstv. forsrh. eins og óskað var eftir.