Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson)
(andsvar)
:
Frú forseti. Ég fagna því að nú kemur fram frá hv. 7. þm. Reykn. stuðningur við mikilvæga þætti í frv. Ég skil það svo að þetta eigi líka við um það að reglur seðlabankalaga taki jafnt til útibúa erlendra banka sem innlendra lánastofnana. Ég vona að ég skilji það rétt auk þess sem hv. þm. sjálfur nefndi. En vegna umræðunnar, sem fram fer um nákvæmt orðalag brtt. við 18. gr. seðlabankalaga, er að sjálfsögðu langheppilegast að það verk fari fram í hv. efh.- og viðskn. en ég hef þegar gert tillögu um að frv. verði til hennar vísað.