Ummæli forsætisráðherra í fjölmiðlum um starfshætti á Alþingi

38. fundur
Föstudaginn 29. nóvember 1991, kl. 11:30:00 (1426)

     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) (um þingsköp) :
     Frú forseti. Er nú ekki mál að linni þannig að þingið geti tekið til óspilltra málanna og fjallað um þau mál sem eru á prentaðri dagskrá þessa fundar og dreift var til undirbúnings honum.