Ummæli forsætisráðherra í fjölmiðlum um starfshætti á Alþingi

38. fundur
Föstudaginn 29. nóvember 1991, kl. 11:31:00 (1427)

     Umhverfisráðherra (Eiður Guðnason) (um þingsköp) :
     Virðulegi forseti. Varðandi ræðu þá sem hv. 9. þm. Reykv., Svavar Gestsson, flutti hér áðan, þá langar mig til að rifja upp þau orð sem hann lét falla í sams konar umræðum fyrr á þinginu þegar hann sagði, og ég held að ég muni það orðrétt: Það verður ekki hægt að stjórna þinginu og það á eftir að koma ykkur í koll.