Hagræðingarsjóður sjávarútvegsins

38. fundur
Föstudaginn 29. nóvember 1991, kl. 14:57:00 (1440)

     Össur Skarphéðinsson (um þingsköp) :
     Hæstv. forseti. Ég vil einungis taka undir orð hv. þm. Steingríms J. Sigfússonar að það er þinginu til vansa að hér skuli vera svo fáir þingmenn þegar menn ræða jafnmikilvægt mál og hér er til umræðu. Það er sérstaklega athyglivert að hér er ekki staddur einn einasti þingmaður Framsfl. þó að talsmenn þess flokks hafi gert það að sérstöku umræðuefni í þingskapaumræðu fyrr í dag að stjórnarliðar mættu illa til vinnu. Þetta vildi ég, herra forseti, að kæmi hér fram.