Varamaður tekur þingsæti

39. fundur
Mánudaginn 02. desember 1991, kl. 13:37:00 (1444)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Borist hefur svohljóðandi bréf, dags. 27. nóv. 1991:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska eftir því að 1. varamaður Alþfl. í Vesturlandskjördæmi, Gísli S. Einarsson verkstjóri, Akranesi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.``
    Undir þetta bréf skrifar hv. 4. þm. Vesturl., Eiður Guðnason.
    Kjörbréf Gísla S. Einarssonar, varamanns Alþfl. í Vesturl. hefur verið rannsakað og samþykkt. Gísli S. Einarsson hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber nú skv. 2. gr. þingskapa að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.