Iðjuþjálfun misþroska barna

40. fundur
Þriðjudaginn 03. desember 1991, kl. 13:47:55 (1467)

     Heilbrigðisráðherra (Sighvatur Björgvinsson) :
     Virðulegi forseti. Ég get litlu bætt við það sem ég sagði. Þetta mál hefur ekki komið til ákvörðunar hjá mér. Það má vel vera að um þetta sé verið að fjalla í tryggingaráði, en mér er ekki kunugt um það. Ég skal kanna hvar málið er statt og skoða það.