Finnur Ingólfsson
:
Virðulegi forseti. Ég beini spurningu minni til hæstv. fjmrh. Í Morgunblaðinu 28. nóv. sl. er sagt frá tillögum sjútvrh. í efnahags- og atvinnumálum, mjög nákvæmlega getið um það í hverju þessar tillögur felast og vil ég aðeins minnast á þær helstu.
Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir því samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins að fresta eigi afborgunum lána í atvinnutryggingardeild Byggðastofnunar.
Í öðru lagi að fella niður inngreiðslur í Verðjöfnunarsjóð.
Í þriðja lagi að hætt verði við fyrirhugaðar gjaldskrárhækkanir hjá Rarik um næstu áramót.
Í fjórða lagi er gert ráð fyrir því að aðstöðugjaldið lækki og verði afnumið í áföngum.
Og í fimmta lagi er gert ráð fyrir því að raunvextir verði lækkaðir.
Í Morgunblaðinu sl. sunnudag, í viðtali við hæstv. fjmrh., kemur það fram skýrt í orðum hans að hann telur að um ótímabærar tillögur sé að ræða og ásakar hæstv. sjútvrh. um að þjófstarta í þessu máli. Því spyr ég hæstv. fjmrh.:
1. Hvað á fjmrh. við þegar hann ásakar sjútvrh. um að hafa þjófstartað í málinu?
2. Hvaða tillögur eru það af þeim, sem hér er um getið, sem eru ekki tímabærar?
3. Hvenær er þá að vænta tímabærra tillagna frá ríkisstjórninni í efnahags- og atvinnumálum?