Leyfisveitingar til leiguflugs

40. fundur
Þriðjudaginn 03. desember 1991, kl. 14:08:00 (1478)

     Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
     Ég vil beina því til hæstv. ráðherra hvort reglur um auglýsingar, samkeppni og eðlilega viðskiptahætti heyri ekki í raun undir annan hæstv. ráðherra, þ.e viðskrh., og hvort það hafi þá ekki verið hans hlutverk að fylgja því eftir. Og í öðru lagi hvort því verði þá ekki fylgt rækilega eftir og þetta kannað, ekki eingöngu gagnvart leiguflugi heldur gagnvart öllum öðrum tilboðum sem eru í gangi og tengjast eðlilegu áætlunarflugi. Það er nú einu sinni svo að það er fátt mikilvægara okkur Íslendingum en eiga greiðan aðgang til útlanda og þar bjóðist okkur á hverjum tíma bestu kjör sem uppi eru. Þar mega engir aðrir hagsmunir á skyggja.