Framkvæmd búvörusamnings

40. fundur
Þriðjudaginn 03. desember 1991, kl. 14:12:00 (1482)

     Jón Helgason :
     Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. landbrh. fyrir svörin og læt í ljós ánægju mína yfir því að búið skuli vera að ganga frá þessu frv. Það kemur á óvart ef það strandar lengi í ríkisstjórn eftir þær yfirlýsingar sem hæstv. forsrh. hefur gefið að undanförnu um að slík samstaða sé innan ríkisstjórnarinnar að ekki þurfi að semja um neina hluti eða eyða tíma í slíkt. Ég vænti þess því að þetta frv. komi í hendur þingmanna sem allra fyrst. Það er gott að heyra hjá hæstv. ráðherra að ekki sé hætta á að framkvæmd samningsins dragist neitt.