Varamaður tekur þingsæti

41. fundur
Miðvikudaginn 04. desember 1991, kl. 13:30:00 (1539)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Borist hefur svohljóðandi bréf, dags. 2. des. 1991:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur, leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska eftir því að 1. varamaður Alþb. í Norðurl. v., Sigurður Hlöðvesson tæknifræðingur, Siglufirði, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Ragnar Arnalds, 3. þm. Norðurl. v.``


    Kjörbréf Sigurðar Hlöðvessonar, varaþingmanns Alþb. í Norðurl. v., hefur verið rannsakað og samþykkt.
    Sigurður Hlöðvesson hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber nú skv. 2. gr. þingskapa að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.