Starfsmenntun í atvinnulífinu

43. fundur
Fimmtudaginn 05. desember 1991, kl. 13:17:00 (1627)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Hæstv. félmrh. er rétt ókominn. Hún er á leiðinni í húsið. En það hafði verið sérstaklega óskað eftir að hæstv. menntmrh. væri viðstaddur svo að forseti taldi e.t.v. að það mundi duga í þessar mínútur þangað til hæstv. félmrh. kemur. En forseti sér að hv. 8. þm. Reykn. er ekki sammála henni og þá verður beðið í þessar fimm mínútur þar til hæstv. ráðherra kemur og verður fundinum þá frestað í fimm mínútur. --- [Fundarhlé.]