Framkvæmdasjóður Íslands

43. fundur
Fimmtudaginn 05. desember 1991, kl. 17:21:00 (1649)

     Ólafur Þ. Þórðarson :
     Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. utanrrh. fyrir það að hafa komið í ræðustól og sagt það sem hann vissi um þessa hluti. En ég ítreka þá ósk mína að þessar upplýsingar verði afhentar þingmönnum áður en þetta mál fer til 2. umr., úr því sem komið er, þannig að þegar það er hjá nefnd fái menn þessar upplýsingar í hendur til þess að geta metið það í ljósi þeirra undirskrifta sem þar eru hverjar hafi verið skyldurnar og hvort sú meðferð sem nú er verið að leggja til á sjóðnum samræmist þeim skyldum sem við þá tókum á okkur.