Verðjöfnunarsjóður sjávarútvegsins

43. fundur
Fimmtudaginn 05. desember 1991, kl. 18:34:00 (1658)

     Jón Helgason :
     Hæstv. forseti. Það væri hægt að fjalla mikið um málefni sjávarútvegsins eins og staða þeirra er nú, sérstaklega þó eftir þá afstöðu sem hæstv. forsrh. hefur sýnt til þess atvinnuvegar síðustu dagana en ég ætla, eins og hv. síðasti ræðumaður sagði, ekki að tefja framgang þessa máls með því að ræða um það. Vonandi gefst tækifæri til þess síðar. En mig langar aðeins að spyrja hæstv. sjútvrh. að því hvort það er ekki alveg öruggt að ríkisstjórnin verði búin að framkvæma tillögu hans um að færa niður vextina áður en þetta frv. kemur aftur til umræðu á Alþingi eftir meðferð í nefnd.