Kristín Einarsdóttir
(um atkvæðagreiðslu)
:
Virðulegur forseti. Þegar þetta frv., sem á að fara að greiða atkvæði um, var til umfjöllunar í gær lagði ég til að því yrði vísað til menntmn. og vil ég í því sambandi vísa til 23. gr. þingskapa þar sem segir, með leyfi forseta: ,,Vísa skal frumvörpum, þingsályktunartillögum og skýrslum til nefnda eftir efni þeirra og hafa um það hliðsjón af skiptingu málefna í Stjórnarráðinu.`` Þetta frv. er um starfsmenntun í atvinnulífinu þannig að það hlýtur að vera menntamál og því hlýt ég að leggja til að þetta mál fari til menntmn.