Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1992

45. fundur
Laugardaginn 07. desember 1991, kl. 15:05:00 (1712)

     Guðni Ágústsson (andsvar) :
     Hæstv. forseti. Hæstv. forsrh. flutti stillilega ræðu og talaði af ró og rasaði ekki um ráð fram. Það kemur kannski að því sem maður hefur talið sér trú um að hann geti lært og muni kannski áður en jól eru komin sjá að sér á mörgum sviðum. Skal ég ekki hrella hann meira á þessum drottins degi. Þó langar mig að ítreka spurningu mína. Ég lagði bara fyrir hann eina litla spurningu. Það væri forvitnilegt að hann upplýsti mig um það hvaða menn sitja í fortíðarvandanefnd ríkisstjórnarinnar.