Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1992

45. fundur
Laugardaginn 07. desember 1991, kl. 15:07:00 (1714)

     Guðni Ágústsson (andsvar) :
     Hæstv. forseti. Nú þykir mér sem minni hæstv. forsrh. bregðist. ( Forsrh.: Enginn kostur á því.) Þetta hlýtur að vera nefnd sem hæstv. forsrh. hittir nánast daglega. Hversu margir einstaklingar sitja í þessari nefnd? Getur hæstv. forsrh. tíundað eins og tvö nöfn til viðbótar? (Gripið fram í.)