Forsætisráðherra (Davíð Oddsson)
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. fyrir ábendingar hans. Mér kom á óvart að hefði ekki heyrt svar mitt varðandi fjármagnstekjuskattinn. Ég tók niður það sem hann spurði um og svaraði því. Hann spurði: Hvar er málið statt og ég svaraði því. Ég rakti hvernig það væri statt í stjórnarsáttmála og ég rakti það að frumvarp kæmi fram á þessu ári, vonandi í vor orðaði ég það, og ég tók sérstaklega fram að ekki væri gert ráð fyrir því að þetta skilaði nettóhagnaði í ríkissjóð vegna þess að við gerðum ráð fyrir því að eignarskattar lækkuðu á móti. Allt þetta nefndi ég. Þess vegna kom mér á óvart að hv. þm. skyldi ekki hafa heyrt það.
Ég viðurkenndi að ég hefði farið töluvert hratt yfir sögu í framsöguræðunni þegar leið á ræðuna, meira að segja var svo hratt farið yfir sögu eins og menn hafa bent á að ég fjallaði um grein sem ekki er einu sinni í frumvarpinu, refagrenina frægu sem hefur verið rædd nokkuð. En ekki ætla ég að tala um það í andsvari. Ég vil hins vegar fá að vitna í út af vaxtamálunum það sem segir í skýrslu Seðlabankans og hefur ekki verið lesið upp áður, með leyfi forseta:
,,Í kaflanum hér að framan um lánamarkaðinn kemur fram að peningalegur sparnaður hefur dregist saman á þessu ári en lánsfjáreftirspurn aukist. Þessar aðstæður hlutu að valda hækkun vaxta.`` Síðan segir: ,,Framan af árinu héldu ríkissjóður og innlánsstofnanir

þó að sér höndum með breytingar þrátt fyrir vaxandi verðbólgu. Það leiddi til þess að raunvextir lækkuðu verulega, fjáröflun ríkissjóðs fór úr skorðum og illa horfði um afkomu innlánsstofnana.`` Þetta segir allt í frásögn Seðlabankans um það með hvaða hætti handafli var beitt þá.