Seðlabanki Íslands

46. fundur
Mánudaginn 09. desember 1991, kl. 23:28:00 (1772)

     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) (andsvar) :
     Virðulegi forseti. Þessi víxlsöngur svara og andsvara er nú að verða næsta flókinn. Ég þykist alls ekki kunna réttu þingsköpin í því. En spurning virðulegs 6. þm. Norðurl. e. hefur þegar fengið sitt svar og þarf ekki að leggja neitt út af því. Þess vegna bið ég menn bara að taka þau orð nákvæmlega eins og þau voru töluð. Þau voru fá en þau voru líka

alveg skýr.