Skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði

47. fundur
Þriðjudaginn 10. desember 1991, kl. 14:00:00 (1782)

     Steingrímur J. Sigfússon (andsvar) :
     Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. viðskrh. fyrir upplýsingarnar og sömuleiðis það sem ég ætla að leyfa mér að sem túlka stuðning við þessa brtt. Ég gat undir engum kringumstæðum fengið röksemdafærslu hæstv. viðskrh. til að ganga upp öðruvísi en þannig að hann hygðist að sjálfsögðu styðja þessa brtt. Heimildin yrði því fyrir hendi með ótvíræðum hætti í lögum ef niðurstaða þeirrar nefndar sem á hans vegum starfar nú að þessum málum yrði sú m.a. að þetta væri æskileg aðgerð til að geta mætt versluninni í þrengingum. Hafi ég ekki misskilið hæstv. viðskrh. var hann að lýsa yfir stuðningi við tillöguna. Ég fagna því og bíð mjög spenntur eftir að heyra svör hæstv. fjmrh. og fer þá að vænkast vor hagur ef þau verða jafnjákvæð.