Fjárlög 1992

50. fundur
Fimmtudaginn 12. desember 1991, kl. 15:59:00 (1850)

     Jón Kristjánsson (andsvar) :
     Virðulegi forseti. Það er ekkert undanhald byrjað, segir hæstv. félmrh. en ræða hæstv. félmrh. staðfesti að undanhaldið er byrjað. Það verða engir málaflokkar færðir nema með samráði. Auðvitað er þetta árangur af viðbrögðunum í þjóðfélaginu og það er mjög athyglisvert að fá það fram hér við þessa umræðu að hæstv. ráðherrar eru þó farnir að hrökkva til baka og veitir ekki af að bregðast hart við.