Fjárlög 1992

50. fundur
Fimmtudaginn 12. desember 1991, kl. 16:10:00 (1857)

     Guðrún Helgadóttir (um þingsköp) :
     Hæstv. forseti. Ég spurði: Telur hæstv. forseti að 3. umr. fjárlaga hefjist eigi síðar en 15. des., sem raunar verður að vera 14. þar sem 15. er sunnudagur? Getur 3. umr. fjárlaga hafist á laugardaginn kemur að mati hæstv. forseta? Ég vil fá svar við því.