Fjárlög 1992

50. fundur
Fimmtudaginn 12. desember 1991, kl. 16:11:00 (1858)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Forseti vildi gjarnan geta gefið beint svar við þessari spurningu. Samkvæmt þingsköpum á 3. umr. að hefjast í síðasta lagi 15. des. og á morgun er þess að vænta að atkvæðagreiðsla við 2. umr. um fjárlagafrv. fari fram.
    Það eru til leiðir til að uppfylla þessi ákvæði í þingsköpum og það kemur væntanlega í ljós að hægt verður að leysa það vandamál án þess að breyta lögum um þingsköp fyrir laugardaginn næsta.