Steingrímur Hermannsson
(andsvar)
:
Herra forseti. Ég skal viðurkenna að ég átti ekki von á þessari athugasemd frá hæstv. sjútvrh. sem hefur gert sér lítið fyrir og lagt niður einhvern mikilvægasta sjóðinn sem ætlaður var til hagræðingar í sjávarútvegi eða ætlar að gera það, Hagræðingarsjóðinn. Hann leggur á sjávarútveginn að fjármagna rannsóknastofnun, mjög mikilvæga rannsóknastofnun að stórum hluta. En Hagræðingarsjóðnum var ætlað að takast á við mikilvæg verkefni, þ.e. að hagræða íslenskum sjávarútvegi, stórkostleg verkefni. Hvernig á þá að sinna því? Ef litið er á rannsókna- og þróunarstarfsemina saman, því að hagræðing er að stórum hluta þróunarstarf, grunar mig að um verulegan samdrátt sé að ræða á þessu mjög stóra sviði.
Það er alveg rétt að Hafrannsóknastofnun ber að efla. Hún er langöflugasta rannsóknastofnun í dag og hana ber að efla. Engu að síður vil ég halda því fram að ekki sé síður mikilvægt að hlúa að ýmsum nýjum greinum í þessu þjóðfélagi, nýsköpun í atvinnulífinu, renna fleiri stoðum, eins og oft er sagt, undir íslenskt atvinnulíf. Menn segja kannski: Það er slitin plata. En aldrei hefur verið meiri þörf á því en í dag því staðreyndin er sú að það er bæði nauðsynlegt og hollt fyrir sjávarútveginn að íslenskt efnahagslíf hvíli ekki svo einhliða á þeirri grein. Einhver aukning getur orðið þar og verður vonandi. Þar þyrfti að verða umtalsverð hagræðing sem því miður er að verulegu leyti kippt fótum undan en auka ber fjármagn í sjóð eins og Rannsóknasjóð og það verulega, til Rannsóknaráðs og til annarra stofnana sem leita að nýjum greinum í íslensku þróunar- og rannsóknastarfi.