Fjárlög 1992

50. fundur
Föstudaginn 13. desember 1991, kl. 01:29:00 (1884)

     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
     Herra forseti. Vegna ummæla hv. 5. þm. Suðurl. er nauðsynlegt að taka fram að innflutningur á mjólkurdufti hefur ekki verið ræddur í ríkisstjórninni og ég hef ekki tekið ákvörðun um að leyfa hann.