Fjárlög 1992

50. fundur
Föstudaginn 13. desember 1991, kl. 05:17:00 (1933)

     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) :
     Herra forseti. Það er rétt sem hér kom fram að það hefur verið rætt að styrkja stöðu ríkissjóðs með því að draga úr fjárveitingum til Vestfjarðaganga á næsta ári. Þetta mál hefur verið rætt milli Vegagerðar og verktaka í miklu bróðerni og vinskap og mikill misskilningur ef menn halda að það sé málarekstur í uppsiglingu.