Fjárlög 1992

51. fundur
Föstudaginn 13. desember 1991, kl. 14:07:00 (1953)

     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (um atkvæðagreiðslu) :
     Virðulegi forseti. Þar sem ég veit að mér hættir til að tala töluvert hratt, þá finnst

mér sjálfsagt að verða við beiðni hv. þm. og skal lesa þetta miklu hægar heldur en ég gerði síðast.
    Ég gat þess að ég vildi við upphaf atkvæðagreiðslunnar láta eftirfarandi koma fram:
    Til viðbótar þeim brtt. sem samkomulag er um milli allra flokka að draga til baka til 3. umr. vil ég árétta að af hálfu ríkisstjórnarinnar koma nokkur mál ekki til efnislegrar afgreiðslu við 2. umr. Þetta eru fjármál framhaldsskóla og háskóla, tillögur um hagræðingu í sjúkrahúsrekstri á höfuðborgarsvæðinu og fjárhagsleg samskipti ríkis og sveitarfélaga. Þessi mál bíða því frekari umfjöllunar milli stjórnarflokkanna og lokaafgreiðslu við 3. umr.
    Ég tel nú að þegar ég hef farið svona hægt og varlega yfir þetta, þá skýrist málið allvel sjálft.