Ólafur Þ. Þórðarson
:
Herra forseti. Áður en haninn galar tvisvar muntu afneita mér þrisvar var nú dýrasta kennslustund sem ákveðinn klettur fékk á sinni ævi. Reyndar reis hann undir því seinna og var nógu stór til að skilja sín mistök. Við lifum það hér í þingsalnum að lömbin eru þögnuð, eins og gott ritverk og fræg kvikmynd minnir á. En hér er verið að takast á um eitt grundvallaratriði í hugsjónum í stjórnmálum, hvert er viðhorfið til þeirrar æsku sem er að vaxa upp og Nóbelsskáldið lýsti svo að það væri til lítils að veita ellistyrki ef ekki væru veittir bernskustyrkir. Mér eru það vonbrigði hve mörgum hefur orðið það á að láta velta sér upp úr dufti þó að það sé ekki upp úr mjólkurdufti í þessu þingsal, en ég segi já.