Fjárlög 1992

51. fundur
Föstudaginn 13. desember 1991, kl. 15:41:00 (1987)

     Jón Helgason (um atkvæðagreiðslu) :
     Hæstv. forseti. Ég vildi aðeins vekja athygli á því að mér virðist að hér sé misskilningur um formlegt gildi atkvæðagreiðslu. Að sjálfsögðu er það nákvæmlega sama hvort borinn er upp einn eða fleiri liðir undir eins undir atkvæði, það hefur sama gildi við að vísa máli áfram.