Fjárlög 1992

51. fundur
Föstudaginn 13. desember 1991, kl. 16:28:00 (2006)

     Jón Kristjánsson :
     Virðulegi forseti. Ég bað um atkvæðagreiðslu um þennan stofnkostnaðarlið vegna þess að sá háttur var hafður á að þingmönnum Austurl. var sendur þessi liður til yfirferðar og tilfærslu eins og venja er til. Við komum með ákveðna tillögu. Meiri hluti þingmanna Austurl. gerði ákveðna tillögu um skiptingu en þeirri tillögu var hafnað af meiri hluta fjárln. Þetta er mjög óvenjulegt, svo ekki sé meira sagt. Ég mun sitja hjá við atkvæðagreiðslu um þennan lið en áskilja mér rétt til þess að taka málið upp í formi tillögugerðar við 3. umr.