Fjárlög 1992

51. fundur
Föstudaginn 13. desember 1991, kl. 16:52:00 (2017)

     Kristín Einarsdóttir :
     Virðulegi forseti. Þessi liður, 41a, fjallar um það að lækka styrk til Krabbameinsfélags Íslands vegna kostnaðar við krabbameinsleit og er fólginn í því að komugjald eigi að hækka, þ.e. konur eigi að greiða hærra fyrir krabbameinsleitina. Ég tel þetta alls ekki koma til greina og í andstöðu við fyrirbyggjandi aðgerðir og munum við þingkonur Kvennalistans greiða atkvæði gegn þessari tillögu. Við teljum eðlilegt að frekar eigi að lækka gjald vegna krabbameinsleitar en að hækka það.