Samningur um hefðbundinn herafla í Evrópu

52. fundur
Laugardaginn 14. desember 1991, kl. 17:22:00 (2099)

     Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson) (andsvar) :
     Virðulegi forseti. Ég sagði ekkert um það að EFTA ætlaði að bíða rólegt. Það sem ég var að segja frá var að framkvæmdastjórn Evrópubandalagsins hafði tilkynnt með formlegum hætti að hún, framkvæmdastjórnin, ætlaði að afhenda niðurstöður dómstólsins með formlegum hætti á sunnudag. Það var allt og sumt sem ég sagði.