Tekjuskattur og eignarskattur

53. fundur
Mánudaginn 16. desember 1991, kl. 15:32:00 (2112)

     Kristín Ástgeirsdóttir (andsvar) :
     Virðulegi forseti. Ég vil leggja þetta að líku. Það er verið að setja lög sem skerða kjör sjómanna, lög sem eru hluti af samningum og ég ítreka að ég get ekki fellt mig við lagasetningar sem skerða kjör án þess að nokkur tilraun sé gerð til þess að eitthvað komi þar á móti. Þetta er einhliða kjaraskerðing.