Virðulegi forseti. Ég vil taka fram af þessu tilefni að að sjálfsögðu verður haft samráð við sjómenn um framkvæmd þessa máls. Það er ætlunin að sett verði reglugerð eins og kemur fram í frv. sjálfu. Ég vil einungis benda á að það hefur gerst upp á síðkastið að jafnvel menn, sem hafa verið í landi í tvö ár en á launum hjá útgerðinni, hafa fengið sjómannaafslátt samkvæmt úrskurði ríkisskattanefndar og öll framkvæmdin hefur breyst frá því sem upphaflega var hugsað. Það er einungis verið að breyta framkvæmdinni. Kannski mun það leiða til þess að treysta sjómannaafsláttinn í sessi. Ég mótmæli mjög kröftuglega því sem kom fram hjá hv. ræðumanni að leggja þetta frv. til breytinga á tekju- og eignarskattslögum að jöfnu við það að ríkisstjórnin setji lög, stundum bráðabirgðalög, á kjarasamninga. Ég hef staðið að hvoru tveggja en ég get ekki séð hvernig hægt er að jafna þessu saman. Þá skortir a.m.k. talsvert á að við skiljum þær athafnir eins, ég og hv. síðasti ræðumaður.
Tekjuskattur og eignarskattur
53. fundur
Mánudaginn 16. desember 1991, kl. 15:33:00 (2113)
Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson)
(andsvar)
: