Tekjuskattur og eignarskattur

53. fundur
Mánudaginn 16. desember 1991, kl. 21:02:00 (2130)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Forseti hefur nú þegar látið kanna það og gerði það fyrir nokkurri stundu og fékk þær upplýsingar að nefndin mundi ljúka störfum upp úr kl. níu. Forseta sýnist allt benda til þess að nefndin hafi nú þegar lokið störfum. Forseti vill jafnframt geta þess að það lá fyrir að nefndin ætlaði að funda á meðan hlé var gert á þingfundi og vissi því ekki annað en að þeim fundi væri lokið þó að það hafi eitthvað aðeins dregist fram yfir kl. hálfníu.