Skattskylda innlánsstofnana

53. fundur
Þriðjudaginn 17. desember 1991, kl. 02:11:00 (2167)

     Eyjólfur Konráð Jónsson :
     Herra forseti. Ég mun hafa beðið um orðið fyrir nokkrum dögum um eitthvert mál væntanlega og það mun þá vera þetta. Ég ætla þá að venda mínu kvæði í kross og svara hv. þm. Ólafi Ragnari Grímssyni þeirri spurningu sem hann varpaði fram, hvort ég kannaðist við þessi orð mín frá því fyrir tveimur árum eða svo. Auðvitað kannast ég við þau og ég held hann hafi bara gott af því að lesa allt sem ég hef skrifað um þessi mál og ég hef ekki breytt um skoðun á einu eða neinu.