Lánsfjárlög 1991

54. fundur
Þriðjudaginn 17. desember 1991, kl. 15:49:00 (2196)

     Rannveig Guðmundsdóttir :
     Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. frá meiri hluta efh.- og viðskn. á þskj. 240 um frv. til laga um breyting á lánsfjárlögum fyrir árið 1991.
    Nefndin fjallaði um frv. samhliða 30. þingmáli, frv. til lánsfjárlaga fyrir árið 1992. Halldór Árnason og Jón Ragnar Blöndal frá fjmrn. fjölluðu sérstaklega um þetta mál á fundi með nefndinni.
    Við endurskoðun lánsfjárþarfar ríkissjóðs fyrir árið 1991 hefur komið í ljós að heildarlánsfjárþörf ríkissjóðs verður allmiklu meiri en gert var ráð fyrir í lánsfjárlögum fyrir 1991. Þá bætist við sá vandi að ekki mun takast að mæta lánsfjárþörf ríkissjóðs nema að hluta til á innlendum lánamarkaði. Með frv. er því sótt um heimild fyrir ríkissjóð til erlendrar lántöku að fjárhæð 12,8 milljarðar kr.
    Meiri hluti nefndarinnar leggur til að frv. verði samþykkt án breytinga , en þrír nefndarmanna rita þó undir með fyrirvara.
    Undir þetta rita Matthías Bjarnason, Rannveig Guðmundsdóttir, Sólveig Pétursdóttir, Ingi Björn Albertsson og Geir H. Haarde án fyrirvara, og Jón Helgason, Jóhannes Geir Sigurgeirsson og Steingrímur J. Sigfússon með fyrirvara.