Jöfnunargjald

54. fundur
Þriðjudaginn 17. desember 1991, kl. 18:54:00 (2221)

     Ólafur Ragnar Grímsson (andsvar) :
     Virðulegi forseti. Ég hef lofað hæstv. fjmrh. nokkrum bindum í jólagjöf af fyrri ræðum hans og yfirlýsingum. Þingskjölin úa og grúa af ræðum og frumvörpum frá hæstv. núv. fjmrh. þar sem hann lýsti því yfir að það væri afdráttarlaus kvöð að leggja þetta jöfnunargjald niður í árslok 1990. Morgunblaðið skrifaði sérstakan leiðara um það að þau orð skyldu standa og hér situr kannski í salnum höfundur þess leiðara.