Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1992

55. fundur
Miðvikudaginn 18. desember 1991, kl. 20:45:00 (2256)

     Kristín Ástgeirsdóttir (um þingsköp) :
     Virðulegi forseti. Ég vil taka undir orð síðasta ræðumanns. Síðasta fundi í efh.- og viðskn. lauk rétt fyrir kl. hálfsjö og þá gengu af þeim fundi fulltrúar úr fjmrn. sem voru að fara með okkur í gegnum tekjuhlið fjárlagafrv. Og eins og fram kom þá bíður fjárln. eftir þessu áliti. Minni hlutinn hefur ekki einu sinni náð því að setjast niður til þess að ganga frá því hvernig þetta álit eigi að vera, þannig að ég vil eindregið fara þess á leit að þessu máli sem nú átti að taka á dagskrá verði frestað um sinn. Það þarf ekki að vera mjög lengi en þó um sinn.