Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1992

55. fundur
Miðvikudaginn 18. desember 1991, kl. 20:51:00 (2258)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Forseti biður hv. 11. þm. Reykv. velvirðingar á því að hún tók ekki eftir að hann hafði einnig beðið um orðið um gæslu þingskapa á undan þeim sem hafa talað. En nú ætlar forseti að fresta því í tvo tíma að taka þetta mál til umræðu. Forseti hefur fengið upplýsingar um að það mundi duga til þess að ljúka því sem þingmenn telja sig þurfa að vinna til þess að málið geti komið til umræðu. Þess vegna verður umræðu um þetta dagskrármál frestað til kl. 11 í kvöld.