Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1992

55. fundur
Fimmtudaginn 19. desember 1991, kl. 02:07:00 (2279)

     Forseti (Björn Bjarnason) :
     Ef það má verða þingmanni til leiðbeiningar í þessum umræðum um þingsköpin vill forseti upplýsa að embættismenn þingsins hafa tilkynnt honum að fyrir því eru ótal fordæmi að þannig hafi verið staðið að málum að þingskjölum hafi verið dreift á þessum tíma sólarhrings og síðan tekin fyrir næsta dag. Fyrir því eru ótal fordæmi.