Halldór Ásgrímsson
(um þingsköp)
:
Virðulegur forseti. Það er náttúrlega alveg ljóst að hér er nokkur vandi á höndum varðandi framkvæmd hinna nýju þingskapa. Komið hefur í ljós á síðustu dögum að menn hafa e.t.v. ekki sett sig nægilega vel inn í þau og ekki gætt þess að fara eftir þeim í einu og öllu. Þannig var t.d. alveg ljóst að það hafði ekki verið virt nægilega að efh.- og viðskn. færi yfir áhrif skattalagabreytinga á tekjur ríkissjóðs fyrir 2. umr. fjárlaga og fyrir 3. umr. fjárlaga. Nú má vel vera að sumir vilji taka þetta nokkuð léttilega. En það var ekki meiningin með setningu hinna nýja þingskapalaga.
Ég gerði grein fyrir því áður í kvöld að okkur í minni hlutanum hefði ekki unnist tími til að skila áliti til fjárln. Það vorum við nú að gera tíu mínútur yfir tvö, svo rétt sé farið með, eftir þeirri klukku sem ég horfi á. Ég veit ekki til þess að annað tímatal sé annars staðar í húsinu. Ég hef ekki séð nál. frá hæstv. fjárln. Það má vel vera að því hafi verið dreift en það hefur ekki komið á mitt borð. Mér er heldur ekki ljóst hvernig hæstv. fjárln. fer að því að dreifa nál. fyrr en efh.- og viðskn. hefur skilað sínum álitum til hennar því að það stendur hér í þingsköpunum: ,,Efh.- og viðskn. skal gera grein fyrir áhrifum skattalagabreytinga á tekjur ríkissjóðs fyrir 3. umr. Álit og tillögur nefndanna skal prenta sem fylgiskjöl með nál. fjárln. eða meiri hluta hennar`` o.s.frv.
Ég ætla ekki að segja neitt um það klukkan hvað þessum brtt. var útbýtt. Ég fylgdist ekki með því. En aðalatriðið er það að ég vil gera grein fyrir því að okkur hefur auðnast að skila þessu áliti og það ber að prenta sem fylgiskjal með nál. fjárln. Því hefur enn ekki verið dreift enda gerði ég ekki ráð fyrir að því yrði dreift fyrr en efh.- og viðskn. hafi skilað sínum álitum. Þannig stendur málið og ég tel að skoða verði það í því ljósi miðað við gildandi þingsköp sem hér eru, hvernig svo sem menn líta á málið.
Ég vil jafnframt minna á að auðvitað hefur oft komið fyrir áður að leitað sé afbrigða. Ég veit ekki betur en að leitað hafi verið afbrigða áðan út af brtt. Það er því ekki nýtt í sögu þingsins að leitað sé afbrigða, sérstaklega síðustu daga fyrir jól og síðustu daga áður en þingi lýkur. Það er algengt og ég býst við að það hafi oft komið fyrir að leitað hafi verið afbrigða í fjárlagaumræðu.