Virðulegi forseti. Ég kvaddi mér bara hljóðs núna til þess að taka undir þau sjónarmið sem fram komu hjá hv. 1. þm. Austurl. varðandi það hvað telst gilt nál. fjárln. Mjög mikilvægt er að það liggi fyrir að afstaða okkar í þessu efni er alveg skýr og algjörlega samhljóða.
Ég vil einnig þakka hv. 8. þm. Reykv. fyrir þennan fyrirlestur um lýðræði sem hann flutti hér áðan. Hann var mjög merkilegur, ekki síst fyrir mann af lýðræðiskynslóðinni sem er formaður í þingflokki Sjálfstfl. Með öðrum orðum: Hv. 8. þm. Reykv. hefur tjáð þingheimi það að meiri hlutinn ráði á Alþingi. Það er nefnilega það. Meiri hlutinn ræður í nefndunum. Meiri hlutinn skilar áliti. Minni hlutinn skilar áliti,
jú hann getur gert það, en það skiptir bara engu máli. Minni hlutinn er aukaatriði, í rauninni má sleppa minni hlutanum. Í raun er minni hlutinn óþarfi og ástæðulaust að hlusta neitt á hann af því að meiri hlutinn ræður. Það er hann sem hefur valdið og stjórnar valtaranum sem er verið að rúlla yfir þingmenn þessa dagana.
Þessi athyglisverði lýðræðisfyrirlestur hv. þm. Geirs Haarde hefur að vísu stundum heyrst áður, aðallega í stofnun sem heitir borgarstjórn Reykjavíkur. Þessi lýðræðisfyrirlestur hefur aldrei áður verið fluttur á Alþingi Íslendinga, þessi meirihlutahroki sem birtist hjá hv. 8. þm. Reykv. Ég harma að þessi fyrirlestur skuli hafa verið fluttur hér. Hann er dapurleg heimild um það sálarástand sem ríkir í innstu hugarfylgsnum forustumanna stjórnarflokkanna. Og staðfestir auðvitað einnig af hverju illa gengur á Alþingi. Það er af því að það er viðhorf þessara manna að berja eigi á minni hlutanum. Það sé réttlætanlegt að berja á minni hlutanum og það sé beinlínis rangt að sýna minni hlutanum tillitssemi. Ég er ósammála þessum viðhorfum. En það er gott að þau fengu að koma fram í þessum stól í nótt vegna þess að þau sýna og skýra af hverju þinghaldið er í því ástandi sem menn sjá á þessari nóttu.