Hæstv. forseti. Ég held að það sé alveg nauðsynlegt að kenna hv. þingheimi, þeim sem ekki hafa þegar lært það, að þingnefnd er allir nefndarmenn. Hvort hún skilar einu nál., tveimur, þremur eða fjórum, eftir því sem verkast vill, þá eru öll nál. nefndar jafngild. Ég kann þess engin dæmi að hæstv. forseti hafi ekki beðið eftir nál. allra nefndarmanna, hafi verið talað um að þau kæmu. Fyrir kom að nál. kom ekki, en þá tilkynnti minni hluti eða hluti af minni hluta að það mundi ekki koma nál. En ég er ansi hrædd um að núv. hæstv. landbrh. hefði tekið stór skref hér í ræðustól ef til hefði staðið að fara að ræða mál á meðan beðið væri eftir nál. frá einhverjum hluta nefndar. Þetta held ég að sé alveg ljóst að menn skilji, að það er enginn nefndarmaður öðrum æðri í þingnefnd. Til þess eru þingnefndir að láta í ljós skoðun sína á þingmálum. Því er þessi umræða svo fáránleg að það er næstum því ástæða til að fyrirverða sig fyrir að
þurfa að vera lesa svo sjálfsagða hluti yfir hv. þingheimi.
En vegna þess að ég er hingað komin þá vil ég vekja athygli á því að nú klukkan hálf þrjú að nóttu á allur þorri þingmanna eftir að lesa það sem ég held hér á, sem eru hluti af fjárlagafrv. íslenska ríkisins fyrir árið 1992. Nál. minni hluta efh.- og viðskn. er þessi bunki hér, að mér sýnist mjög vandað og vel unnið plagg sem ég held að væri mjög nauðsynlegt að þingheimur læsi. Álit meiri hluta nefndarinnar er fljótlesnara. Síðan eru hér veigamiklar brtt. sem eru alveg nýkomnar á borð hv. þm. ( Gripið fram í: Þetta er um ráðstafanir í ríkisfjármálum.) Þá hef ég tekið vitlaust plagg og bið ég afsökunar á því, ég skal sækja það rétta. Síðan eru hér brtt. frá samgn. og ítarlegt nál. um flóabáta og annað slíkt, fólks- og vöruflutninga og brtt. sem eru þetta plagg hér. Og ég spyr: Hvenær ætlar hv. þingheimur að lesa þetta til að vita eitthvað um hvað á að ræða hér á morgun ef til stendur að ræða fjárlög?
Þetta vildi ég benda á. Hins vegar svona til gamans, af því að menn eru orðnir syfjaðir og þreyttir, þá afgreiddum við hér áðan afbrigði til að mál mættu koma hér á dagskrá og var nokkurn veginn svipuð tala stjórnar og stjórnarandstöðu sem samþykkti það, en það vekur athygli að hv. þm. Össur Skarphéðinsson er hér skráður: Eftirfarandi þingmenn greiddu ekki atkvæði: Guðrún Helgadóttir, Össur Skarphéðinsson. --- Og sækja nú saman gamlir félagar.